FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028
SKOTALDA 4 Í BLÁSKÓGABYGGÐ
Einstök sumarhúsalóð - einstakt útsýni yfir allar Biskupstungur.
Sumarhúsalóðin, Skotalda nr. 4, upphaflega í landi Austurhlíðar í Biskupstungum. Um er ræða 4.712 fm eignarlóð með ótrúlegu útsýni yfir Suðurlandið. Kaldavatnsréttindi fylgja lóðinni og stendur nú yfir vinna við nýja vatnslögn. Rafmagnsdreifikassi Rarik er við lóðarmörk. Samkvæmt uppdrætti á vef Veitna er lögn fyrir heitt vatn meðfram vegi við lóðarmörk. Vegur er að lóðinni og afleggjari inn á hana. Lóðin er deiliskipulögð með afmörkuðum byggingarreit. Lóðin er í brekku, efst fjögurra samliggjandi lóða. Heimilt er að byggja allt að 150 fm hús.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss. Stutt er í sundlaug í Reykholti og golfvöll í Úthlíð. Stutt í hálendið sunnan Langjökuls og fjölmargar fallegar gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected]