FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ SUNNUBRAUT 22 Í VÍK.
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utanverðu með liggjandi álklæðningu og timburklæðningu að hluta. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi og skáp.
Sambyggt eldhús og stofu með flísum á gólfi og vandaðri innréttingu með ofni, uppþvottavél og stórum frysti- og kæliskáp. Úr rýminu er hurð út á verönd.
Gang með flísum á gólfi.
Fjögur svefnherbergi með flísum á gólfum og skápum.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, stórri sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Inn af anddyri er annað
baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.
Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með flísum á gólfi og innréttingu.
Bílskúrinn er með flísum á gólfi, innkeyrsluhurð með opnara og í honum er geymsla með flísum á gólfi. Í húsinu eru gólfhitalagnir, kyntar með rafmagni. Við húsið er timburverönd með skjólveggjum, rafkyntum heitum potti, saunatunnu og útisturtu. Einnig er á lóðinni stór hellulögð verönd og gangstétt og malbikað bifreiðastæði. Á lóðinni er enn fremur um 15 fm
garðhús úr timbri, einangrað og klætt að innan með panel og flísum á gólfi. Rafkynding er í húsinu.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877 og getfang:
[email protected]Guðmundur Einarsson, lgf, gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected].
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.