FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
ENDARAÐHÚS MEÐ SAMBYGGÐUM BÍLSKÚR VIÐ BAUGÖLDU NR. 26 Á HELLU.
Húsið er byggt úr timbri árið 2006 og er klætt að utan með steniklæðningu. Stærð íbúðar er 99,3 fm og stærð geymslu og bílskúrs er 30,2 fm. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Stofu með parketi á gólfi og hurð út í garðinn.
Eldhús með flísum á gólfi og góðri innréttingu, með eldavél, ofni og uppþvottavél.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra og í hjónaherbergi er hurð út í garðinn.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, baðkeri, sturtuklefa og innréttingu.
Þvottahús með ómáluðu steingólfi. Úr forstofunni er innangengt í
bílskúrinn, sem er með gönguhurð og innkeyrsludyrum. Í enda hans er
geymsluherbergi. Við húsið er timburverönd og hellulagt bifreiðastæði. Garðurinn er gróinn.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang:
[email protected].
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.