Sandalda 6C, 850 Hella
43.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
80 m2
43.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
39.900.000
Fasteignamat
38.200.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHFsími: 487-5028

RAÐHÚS VIÐ SANDÖLDU 6C Á HELLU.
Um er að ræða íbúð í fjögurra íbúða raðhúsi, sem er byggt úr timbri árið 2019 og er klætt að utanverðu með stálklæðningu og timbri.  Íbúðin telur:  Anddyri með flísum á gólfi og stórum skápum skápum.  Sambyggða stofu og eldhús með parketi á gólfi og hurð út í garðinn.  Vönduð innrétting með eyju er í eldhúsinu.  Í innréttingunni er eldavél, ofn, háfur, örbylgjuofn, ísskápur og frystir.  Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og skápum.  Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél.  Gólfhiti er í öllum rýmum.  Við húsið er rúmgóð verönd úr timbri, ruslatunnuskýli, steypt gangstétt og bifreiðastæði, hvoru tveggja með hitalögnum.  Lóðin er gróin..

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Einarsson, í síma 8639528, tölvupóstur [email protected]. og Ágúst Kristjánsson í síma 893-8877, tölvupóstur [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.