Þrúðvangur 37, 850 Hella
37.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
3 herb.
81 m2
37.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1942
Brunabótamat
35.300.000
Fasteignamat
27.750.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

EINBÝLISHÚS VIÐ ÞRÚÐVANG 37 Á HELLU.
Húsið sem stendur á 406 fm eignarlóð á bökkum Ytri Rangár, er byggt úr timbri árið 1942 og er klætt að utan með bárujárni.  Búið er skipta um glugga og gler í hluta hússins.  Einnig er búið að skipta um ofna og vatnslagnir.  Eignin telur:  Anddyri með flísum á gólfi.  Gang með flísum og plastparketi á gólfi.  Sambyggt eldhús og borðstofu með plastparketi á gólfi og ágætri innréttingu.  Baðherbergi, sem jafnframt er þvottahús með flísum á gólfi og sturtu.  Setustofu með plastpaketi á gólfi.  Tvö svefnherbergi með plastparketi á gólfum og svefnaðstöðu fyrir 6 manns, stór skápur er í öðru þeirra.  Við húsið er timburverönd með heitum potti, þaðan er fallegt útsýni út á Ytri Rangá.  Undanfarin ár hefur verið rekið gistiheimili í húsinu og er það skráð sem slíkt.  Við söluna fylgja með gistibókanir, nánast fullbókað er í húsið út september n.k.  Einnig fylgja með húsgögn og húsbúnaður.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Einarsson, í síma 8639528, tölvupóstur [email protected]. og Ágúst Kristjánsson í síma 893-8877, tölvupóstur [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.