ÍBÚÐARHÚS TIL BROTTFLUTNINGS STAÐSETT Í RANGÁRÞINGI YTRA.
Húsið er byggt úr timbri árið 2000 og er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu. Það stendur á súlum og var flutt nýbyggt í heilu lagi á núverandi stað. Að innanverðu eru veggir og loft klædd með panel, en dúkur er á gólfum. Húsið telur;
anddyri, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og
sambyggt eldhús og stofu, með ágætri innréttingu og hurð út. Við húsið er lítil
verönd úr timbri. Undirstöður og rotþró fylgja með við sölu. Mögulegt er að fá keypta 5 til 10 hektara landspildu á næsta nágreni til að setja húsið niður á. Hluti þess lands er skógi vaxinn.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.