FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
SUMARHÚS VIÐ LANGANES 14 Í RANGÁRÞINGI EYSTRA.
Húsið er byggt úr timbri á steyptan sökkul og með steyptri botnplötu. Það er klætt að utanverðu með liggjandi timburklæðningu. Að innanverðu eru veggir og loft klædd með hvíttuðum panel. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og ágætri innréttingu.
Stofu með parketi á gólfi, kamínu og hurð út á verönd.
Herbergjagangur með parketi á gólfi og hurð út á verönd.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi með dúk á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.
Þvottahús/geymsla með flísum á gólfi. Við húsið er stór
verönd með
heitum potti. Húsið stendur á leigulóð í eigu Rangárþings eystra, skammt frá bakka Eystri-Rangár og eru ca 55 ár eftir af honum. Á lóðinni er fjölbreyttur tjrágóður, lítil
útgeymsla úr timbri,
grillhús og malarborið bifreiðstæði og heimreið. Á staðnum er víðsýnt og fallegt útsýni til allra átta.
Stutt í margskonar þjónustu á Hvolsvelli og Hellu einnig stutt á golfvöll,í laxveiði og margt fleira.Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877 og netfang:
[email protected]