FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS OG BÍLSKÚR VIÐ BERGÖLDU 5 Á HELLU.
( EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN )Húsið og bílskúrinn eru byggð úr timbri og klædd að utanverðu með standandi timburklæðninu. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi og stórum skáp.
Gestasalerni með flísum á gólfi og innréttingu.
Hol með parketi á gólfi og hurð út í garðinn.
Stofu með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Búr með flísum á gólfi.
Gang með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu og innréttingu. Gler er á veggjum í sturtunni.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra.
Þvottahús, sem í dag er nýtt sem svefnherbergi með máluðu steingólfi.
Bakinngang með flísum á gólfi.
Bílskúrinn er einangraður og klæddur að innan verðu. Á honum eru innkeyrsludyr og gönguhurð. Við húsið eru tvær verandir með skjólveggum og er önnur þeirra með heitum potti, Gangstéttar og bifreiðastæði eru steypt og garðurinn er gróinn og í góðri hirðu. Hér er um að ræða eign sem hefur fengið gott viðhald og er að öllu leyti í góðu ástandi.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson, í síma 863-9528, tölvupóstur
[email protected]